þá eru prófin búin, ég búin að fá einkunnirnar mínar og gekk
svona glimrandi vel! Reyndar ekki það erfiðasta sem ég hef tekist á
við, skil það núna afhverju það á að fara breyta þessu námi en hvað
með það, ég er 7 einingum ríkari og 7 einingum nær því að fá
meistaraprófið mitt, þá á ég bara 10 einingar eftir 
En eitt finnst mér þó sérlega hallæristlegt, í einum áfanganum
þá vorum við send með prófið heim og áttum að svara því heima og
senda svörin á maili til kennaranna, jújú kellan gerir það
nema ég og mín tæknilega heppni eigum alltaf jafn gott skap
saman eða þannig, en auðvitað þurfti ég að lenda í því að e-mailið
frá mér komst ekkert til skila, maður er jú vanur um að fá
einhverja meldingu um það þegar pósturinn kemst ekki til skila en
nei ekki var ég vör við það í þetta skipti, svo skoðaði ég
einkunnirnar mínar í gær en nei þá var ég bara með 0 í þessum
áfanga svo stóð að nemandi hafi fallið!! hah vá hvað ég var ekki
sátt, en jú jú auðvitað hafði ég samband við kennarann og fékk
þetta leiðrétt, kom svarblaðinu áleiðis og nú stendur á
einkunnarblaðinu S sem stendur fyrir staðist,
En að öðru, þá er allt að gerast í litlu íbúðinni okkar, komin
mynd á þetta allt saman, erum að klára velja innréttingar og græja
allskonar hluti enda styttist óðum í að hún verði klár